Umhverfisvænn lífsstíll
Ellý Katrín Guðmundsdóttir borgarritari, bendir á að umhverfisvænn lífsstíll sé smart
Borgarstjóri á hjóli
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr elskar hjólið sitt og nýtir það eins oft og hann getur.
Börnin og býflugurnar
Í Fjölskyldu og húsdýragarðinum er margt um að vera á sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 19. apríl.
Grænt skrifstofuhald
Græn skref í starfsemi Reykjavíkurborgar eru áhugaverð fyrir þau fyrirtæki innan borgarinnar, sem ekki hafa þegar skráð sig í verkefnið, fyrir birgja borgarinnar og önnur fyrirtæki, sem vilja stíga fyrstu grænu skrefin í skrifstofuhaldi sínu.
Græn skref Reykjavíkurborgar
Rekstur stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar á að vera til fyrirmyndar. Verkefnið er að feta veginn í átt til betri framtíðar. Ríflega 30 fyrirtæki hafa þegar stigið grænu skrefin í Reykjavík og eru aðrir hvattir til að fylgja í kjölfarið.
Jarðarstund – Earth Hour Day
Eitt af því sem aðstandendur GRÆNS APRÍL hvöttu þátttakendur í verkefninu þetta árið til að gera var að hefja í raun umhverfisátakið degi fyrr og taka þátt í EARTH HOUR DAY, eða degi Jarðarstundar þann 31. mars.
Umhverfisleikir og rathlaup í Grasagarðinum
Árlegum Degi umhverfisins verður fagnað í Grasagarðinum með fjörugum umhverfisleikjum fyrir alla fjölskylduna, laugardaginn 30. apríl frá kl. 11-14. Einnig verður öllum boðið að ganga eftir „ónáttúrulega stígnum“ en við hann er ýmislegt forvitnilegt að finna sem alla jafna á ekki heima í Grasagarðinum. Auk þess munu félagar í Rathlaupsfélaginu Heklu kynna rathlaup fyrir gestum og leiðbeina þeim um nýja rathlaupsbraut í Laugardal.
Ræktunarstöðin fær viðurkenningu
Garðyrkjuverðlaunin eru rós í hnappagat Ræktunarstöðvar Reykjavíkur sem valin var verknámsstaður ársins 2011 á hátíð um helgina. Garðyrkjufræðingum stöðvarinnar var sérstaklega hrósað fyrir fagmennsku og að veita nemendum fjölbreytta og góða leiðsögn. Súsanna Flygenring ræktunarstjóri tók við verðlaununum fyrir hönd stöðvarinnar.
Skógarganga fyrir skógarunnendur
Reykjavíkurborg stendur fyrir skógargöngu, í tilefni af Grænum apríl, fyrir skógarunnendur fimmtudaginn 28. apríl kl. 18.30-20.00 við Rauðavatn.
Síðasti snúningur
Nagladekk eru bönnuð á götum Reykjavíkur eftir 15. apríl. Engin ástæða er til að vera á nöglum í borginni enda hefur slíkum hjólbörðum stórlega fækkað á liðnum árum. 34% bifreiða reyndust á nöglum í marsmánuði.
Sparnaður orkar ekki tvímælis
Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópskum orkudögunum sem hafa það að markmiði að efla hagkvæma orkunýtingu og styðja nýtingu vistvænnar orku. Borgarbúar eiga góða möguleika á að spara orku á heimilum og í fyrirtækjum.
Ferðalög framtíðar: græn, blá eða grá?
Reykjavíkurborg stendur fyrir málstofu um umhverfisvæna ferðaþjónustu í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns, fimmtudaginn 7. apríl kl. 08:30-10:00.
Reykjavíkurborg er grænjaxl
Reykjavíkurborg er grænjaxl og fjölmargar aðgerðir og viðburðir eru á prjónunum, sem kynntir verða í apríl, þar sem græni kosturinn er valinn í starfi borgarinnar.








