Páll Óskar og plastið

Páli Óskari dytti aldrei, aldrei í hug að henda einhverju þar sem hann stendur, eins og svo margir virðast stunda umhugsunarlaust. Páll Óskar hugsar áður en hann flokkar.

Páll Óskar og pappírinn

Páll Óskar er annálað snyrtimenni hvert sem litið er. Hann kynntist fyrst flokkun á ferð sinni til New York árið 1993, þegar hann sá flokkunartunnur á almannafæri í fyrsta sinn.

Blái herinn

Tómas J. Knútsson, atvinnukafari, stofnaði Bláa herinn og hefur á þeim 15 árum, sem liðin eru frá stofnun haft forgöngu um að hreinsa hundruðir tonna af rusli frá ströndum landsins. Hundruðir rafgeyma hafa skilað sér upp úr höfnum í endurvinnslu. Einnig hefur Tómas verið óþreytandi við að virkja ungmennin í kringum sig til starfa og þar með vakið með þeim kærleika fyrir umhverfinu.

Reykjavíkurborg sækir ruslið!

ruslatinsla

Á sunnudag, Degi jarðar, þegar við fjölmennum út á strætim, torg og bersvæði borgarinnar kl.12.30 – eru bæði Sorpa og starfsmenn hreinsunardeildarinnar á vaktinni.

Hvað verður um ruslið okkar?

SORPA hefur séð um ruslið okkar í meira en tvo áratugi. Markmiðið er að auka endurvinnslu og endurnotkun. Endurvinnslustöðvarnar taka við úrgangi, þar sem hægt er að flokka í allt að 25 flokka og skila inn flöskum og dósum og fá pening fyrir. En það eru ekki bara skilagjöld til einstaklinga sem eru fjármunir þegar ruslið okkar er annars vegar.

Einn svartur ruslapoki

Ruslið í Reykjavík

Grænn apríl skorar á alla Reykvíkinga að fara út með einn svartan ruslapoka og fylla hann af drasli og rusli, em er að finna í næsta nágrenni. Fyllum pokann og tökum til í borginni okkar.

Ellen segir sögu af góðri umgengni

Ellen Kristjánsdóttir

Við leggjum allt kapp á að taka til heima hjá okkur, en stundum er eins og þrifskynið hverfi þegar gengið er út um dyrnar

Náðu þér í ókeypis rafhlöðukassa hjá Olís

rafhlodur

Það kostar ekkert að skila rafhlöðum til úrvinnslu. Því miður er allt of litlu magni af rafhlöðum skilað árlega. Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins á árinu 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað til úrvinnslu. Þetta eru ekki nema 21% af öllum seldum rafhlöðum hér á landi. Þetta þýðir að hvorki meira né minna en rúm 124 tonn af rafhlöðum, 79%, hafa farið beint í ruslið og því verið urðuð með öðru sorpi.

Dýrmætur efniviður

Hvalfjörður

Hvalfjarðarsveit markaði þá stefnu á haustmánuðum 2010 að flokka sorp. Í nóvember var byrjað á svo nefndu þriggja tunnu kerfi þannig að núna er allt lífrænt sorp flokkað frá, flokkað í endurvinnslutunnu og svo fer í þriðju tunnuna það sem ekki er hægt að vinna og er urðað. Hvalfjarðarsveit sparar urðunarkostnað í Fíflholtum. Með aukinni flokkun er stefnt að lækkun á urðunarkostnaði en að auki að ná frá þeim markmiðum sem okkur eru sett varðandi urðun til framtíðar.

Hefur tínt upp 250 kíló af rusli

Þórdís G. Arthúrsdóttir

Þórdís er með áráttu fyrir tölum og hefur haldið til haga hversu mikið magn af rusli hún hefur tínt upp af götu sinni á einu og hálfu ári. 250 kíló eða 1/4 úr tonni er það magn, sem Þórdís hefur tínt saman, borið heim, komið í flokkun og urðun. Þetta sýnir að við getum hvert og eitt breytt heiminum í kringum okkur.

Endurvinnsla og skógar í Sesseljuhúsi

sesseljuhus.is

Í Sesseljuhúsi stendur nú yfir sýningin Endurvinnsla og skógar.
Íbúar Sólheima söfnuðu öllum umbúðum sem til féllu á heimili þeirra í eina viku og var útbúið svokallað skógarherbergi úr ruslinu. Þetta var meðal annars gert til að vekja íbúa til umhugsunar um allt ruslið sem til fellur og hvernig hægt sé að takmarka það, einnig að sýna fram á að rusl getur líka verið auðlind.

Listaverk leikskólans á Bergi

Ruslahjón frá Bergi á Kjalarnesi

Á leikskólanum Bergi á Kjalarnesi hafa börnin skapað stórmerkileg listaverk úr verðlausu efni, sem meðal annars hefur fallið til frá eldabuskunni, eins og þau segja sjálf.

Förum upp úr hjólförunum

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra

Á skrifstofum Umhverfisráðuneytisins eru ekki ruslafötur. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra sviptir hulunni af því fyrirkomulagi.

Hin eilífa saga plastpokans

plastpoki, plastmengun

Plast, varir að eilífu eða þar um bil. Hvernig ætli það sé að vera plastpoki? Myndbandið veitir innsýn í það.