GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck

Guðrún G. Bergmann, Grænir hælar

Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe.

Hótel Hellnar, platinum

Hótel Hellnar gekk til liðs við umhverfisvottunarsamtökin Green Globe árið 2000 og hlaut vottun frá þeim árið 2002, en nafni Green Globe var fyrir nokkru breytt í EarthCheck. Hótelið er tekið úr árlega og við úttekt á árinu 2012 er gert ráð fyrir að það hljóti Platinum vottun frá EarthCheck, fyrst allra hótela í Evrópu, en það hljóta þau fyrirtæki sem hafa verið vottuð í 10 ár.

Íbúarnir gera kröfur

Kristinn Jónasson

Snæfellsnes er fyrsta landsvæðið í Evrópu sem fær umhverfisvottun Green Globe-samtakanna og það fjórða í heiminum. Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ segir undirbúningsferlið hafi krafist mikillar vinnu, enda sveitarfélögunum settar strangar kröfur til að fá slíka alþjóðlega vottun.

Snæfellsbær er grænjaxl

snb.is

Snæfellsbær er á utanverðu Snæfellsnesi.  Snæfellsbær er hluti af fyrsta vottaða sveitarfélagi í Evrópu og er sannkallaður grænjaxl.

Umhverfisvæn eftirspurn ber árangur

http://www.olis.is

Þegar Snæfellsbær stefndi í vottun umhverfisstjórnunarkerfisins Green Globe varð til þörf fyrir að aðkeyptar vörur yrðu að vera merktar viðurkenndu umhverfismerki. Hér er lítil dæmisaga úr raunveruleikanum sem fjallar um samvinnu, sem ber árangur.