Reykjavíkurborg sækir ruslið!
Á sunnudag, Degi jarðar, þegar við fjölmennum út á strætim, torg og bersvæði borgarinnar kl.12.30 – eru bæði Sorpa og starfsmenn hreinsunardeildarinnar á vaktinni.
Hvað verður um ruslið okkar?
SORPA hefur séð um ruslið okkar í meira en tvo áratugi. Markmiðið er að auka endurvinnslu og endurnotkun. Endurvinnslustöðvarnar taka við úrgangi, þar sem hægt er að flokka í allt að 25 flokka og skila inn flöskum og dósum og fá pening fyrir. En það eru ekki bara skilagjöld til einstaklinga sem eru fjármunir þegar ruslið okkar er annars vegar.
1. apríl í Kringlunni
Grænn apríl 2012 hófst í Kringlunni sunnudaginn 1. apríl. Gestir Kringlunnar kynntu sér í gleði og ákafa græna vöru, þekkingu og þjónustu, sem þátttakendur í Grænum apríl bjóða uppá, en nokkrir þeirra voru einnig á staðnum. Íslenska Gámafélagið veitti Kringlunni viðurkenningu fyrir framsýnt umhverfisstarf og Guðrún G. Bergmann, setti átakið. Taktu þátt í grænu umræðunni [...]
Flottir flokkunarpokar
Nýlega rakst Grænn apríl á frábæra lausn fyrir þá sem vilja flokka heima og eins og svo oft áður er IKEA með lausnina.
SORPA sorterar
Markmið SORPU snýst um aukna endurvinnslu og endurnotkun. Frá fyrsta starfsdegi breytt Efnamóttakan miklu í rétta átt og bæði Metan og Góði hirðirinn hafa gengið glimrandi vel. Góði hirðirinn er rekinn í samvinnu við líknarfélögin og er óhætt að segja að Góði hirðirinn hafi leyst þörf, sem var fyrir hendi – að koma góðum hlutum áfram til nýrra eiganda. Góði hirðirinn var nýverið tilnefndur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.
SORPA er grænjaxl
SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes. SORPA fagnar 20 ára afmæli á þessu ári og er sannkallaður grænjaxl
Fatasöfnun Rauða kross Íslands er grænjaxl
Deildir Rauða krossins um allt land safna notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Þetta er ekki enungis frábær endurvinnsla heldur leggur fólk Rauða krossinum lið með því að gefa fatnað og styrkir neyðaraðstoð bæði hér á landi og erlendis. Fatasöfnunin er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.








