Græn upplýsingatækni
Nýherji býður til morgunverðarfundar um græna upplýsingatækni í ráðstefnusal félagsins í Borgartúni í fyrramálið, miðvikudaginn 11. apríl. Morgunverðarfundurinn hefst kl. 08:30 og lýkur kl. 10:40. Margir góðir fyrirlesarar taka til máls og er um að gera að mæta og skoða áhrif upplýsingatækni á umhverfið og lausnir, sem þar gætu falist.
Hjóla og spara
Bergþór Pálsson, söngvari og Albert Eiríksson, framkvæmdastjóri, eru meðal þeirra, sem við sjáum í umferðinni dags daglega á hjóli.
Græn skref Reykjavíkurborgar
Rekstur stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar á að vera til fyrirmyndar. Verkefnið er að feta veginn í átt til betri framtíðar. Ríflega 30 fyrirtæki hafa þegar stigið grænu skrefin í Reykjavík og eru aðrir hvattir til að fylgja í kjölfarið.
Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel
Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar fjölskylduvænt.
Græn bílalán Ergo
Brynjólfur Snorrason, ráðgjafi hjá Ergo leiðir okkur í allan sannleik um græn bílalán Ergo, bæði til nýrra og eldri bíla.
Ergo, sem er fjármögnunardeild Íslandsbanka, er stolt að hafa verið fyrst til að kynna græn bílalán á íslenskum markaði. Grænu bílalánin hafa hlotið frábærar viðtökur og margir nýtt sér þau.
Frumkvöðlar á Metanbíl
Þegar síðustu hækkanir á eldsneyti eru hafðar í huga er um að gera að kanna allar leiðir til sparnaðar og ekki sakar að geta bætt andrúmsloftið í leiðinni. Það er virkilega vit í því að aka á metani og velja að nota peningana í eitthvað skemmtilegra.
Sparnaður orkar ekki tvímælis
Reykjavíkurborg tekur þátt í Evrópskum orkudögunum sem hafa það að markmiði að efla hagkvæma orkunýtingu og styðja nýtingu vistvænnar orku. Borgarbúar eiga góða möguleika á að spara orku á heimilum og í fyrirtækjum.
Komum okkur upp úr ruslatunnunni!
Gyða Steinsdóttir er bæjarstjóri í Stykkishólmsbæ. Stykkishólmsbær er grænjaxl og þar eru dregnir að húni bæði grænir og bláir fánar.








