Olís í græna gírnum

Olíuverzlun Íslands eða Olís, rekur eins og kunnugt er fjölda þjónustustöðva undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB – ódýrt bensín um land allt. Færri velta því kannski fyrir sér að Olís hefur um langt árabil tekið þátt í ýmsum umhverfisverkefnum, meðal annars skógrækt og uppgræðslu.

Kaffitár er grænjaxl

kaffitar.is

Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.