Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel
Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar fjölskylduvænt.
Grand Hótel Reykjavík svansvottað
Stærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand Hótel Reykjavík, hlaut í dag vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.
Svansvottað Kaffitár
Kaffihús Kaffitárs fengu Svansvottun í maí 2010 en síðan þá hefur notkun götumála minnkað mikið, sem er mikilvægt, því kaffihús í heiminum bera ábyrgð á fleiri hundruð tonnum af úrgangi.
Farfuglaheimilin í Reykjavík hljóta Kuðunginn
Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins, Kuðungurinn, var veitt í 16. sinn í dag og kom að þessu sinni í hlut Farfuglaheimilanna í Reykjavík fyrir framlag sitt til umhverfismála á síðastliðnu ári. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag og sagði Farfuglaheimilin í Reykjavík vel að verðlaununum komin.
Kaffitár sparaði 40% í urðunarkostnað
Sumir halda að það að vera umhverfisvænn sé bæði dýrt og óþægilegt. Kaffitár hefur allt aðra sögu að segja. Þar spöruðust 40% í urðunarkostnaði við flokkun og starfsfólkið fylltist stolti yfir því að vinna hjá umhverfisvænu og Svansvottuðu fyrirtæki.
Hótel Rauðaskriða í Aðaldal fær Svansvottun
Hótel Rauðaskriða í Aðaldal hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að hótelið er í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni. Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun.
Ó. Johnson & Kaaber er grænjaxl
Ó. Johnson & Kaaber er elsta heildsala landsins og hefur síðustu 105 árin séð íslenskum heimilum fyrir flestum helstu nauðsynjum. Ó. Johnson & Kaaber er grænjaxl og styður Grænan apríl.
GuðjónÓ – vistvæn prentsmiðja í rúman áratug
Prentsmiðjan GuðónÓ er grænjaxl en prentsmiðjan fékk Svansvottun fyrst árið 2000 og þá fyrst íslenskra prentsmiðja. Fyrstu skrefin voru að taka á hreinisefnum og prentlitum, falla frá notkun á jarðolíuefnum og nýta liti unna úr jurtaefnum. Síðan var tekið á nýtingu pappírs og flokkunarferli.








