Þekkir þú merkin?
Margir tengja umhverfismerkin fyrst og fremst við hreinlætisvörur á vökvaformi. Það eru hins vegar fjölmargar aðrar vörutegundir, sem eru umhverfismerktar.
Grand Hótel Reykjavík svansvottað
Stærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand Hótel Reykjavík, hlaut í dag vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.
Svansvottað Kaffitár
Kaffihús Kaffitárs fengu Svansvottun í maí 2010 en síðan þá hefur notkun götumála minnkað mikið, sem er mikilvægt, því kaffihús í heiminum bera ábyrgð á fleiri hundruð tonnum af úrgangi.
Kjaran er grænjaxl
Kjaran gólfbúnaður er grænjaxl og tekur þátt í grænum apríl. Kjaran sérhæfir sig í innflutningi og sölu á vistvænum gólfefnum frá Forbo. Forbo hefur framleitt náttúruleg línoleumgólfefni í meira en hundrað ár.
Kaffitár sparaði 40% í urðunarkostnað
Sumir halda að það að vera umhverfisvænn sé bæði dýrt og óþægilegt. Kaffitár hefur allt aðra sögu að segja. Þar spöruðust 40% í urðunarkostnaði við flokkun og starfsfólkið fylltist stolti yfir því að vinna hjá umhverfisvænu og Svansvottuðu fyrirtæki.
Prentsmiðjan Oddi er grænjaxl
Prentsmiðjan Oddi ehf. hefur verið leiðandi í umhverfismálum hér á landi í prentiðnaði. Prentsmiðjan Oddi er grænjaxl og tekur af heilum hug þátt í starfi Græns apríl. Umhverfismál hafa ávallt skipað stóran sess í rekstri fyrirtækisins og hafa eigendur þess ávallt leitast við að fara vel með hráefni og draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins á skilvirkan hátt. Stefna fyrirtækisins er að viðskiptavinir geti treyst því að sú vara sem við seljum sé framleidd með þeim hætti að sem minnst röskun verði á umhverfinu við framleiðsluna.
Svanurinn auðveldar þér valið
Svanurinn og Umhverfisstofnun eru grænjaxlar og taka þátt í Grænum apríl af heilum hug.
Umhverfismerkingar auðvelda þér að taka upplýstar ákvarðanir þegar þú verslar. Þú getur treyst því að viðkomandi vara og þjónusta standist ströngustu umhverfis- og heilsukröfur.
Forskot Háteigsskóla á Grænan apríl
Hópur frá Háteigsskóla tók smá forskot á Grænan apríl í skólanum í dag. Hópurinn heimsótti vistvænu prentsmiðjuna GuðjónÓ og kynnti sér pappír og endurvinnslu á pappír.
Hótel Rauðaskriða í Aðaldal fær Svansvottun
Hótel Rauðaskriða í Aðaldal hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að hótelið er í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni. Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun.
Ó. Johnson & Kaaber er grænjaxl
Ó. Johnson & Kaaber er elsta heildsala landsins og hefur síðustu 105 árin séð íslenskum heimilum fyrir flestum helstu nauðsynjum. Ó. Johnson & Kaaber er grænjaxl og styður Grænan apríl.
Kaffitár er grænjaxl
Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.
Prentmet sækist eftir Svaninum
Prentmet er í hópi þeirra íslensku fyrirtækja, sem vinnur að því að verða sem umhverfisvænast.
Þann 31. mars, koma fulltrúar frá Umhverfisstofnun og taka fyrirtækið út með það fyrir augum að Prentmet komist í hóp þeirra fyrirtækja, sem geta skartað Svansmerkinu á afurðum sínum.
Svanurinn
Svanurinn er eitt þekktasta og útbreiddasta umhverfismerkið á Norðurlöndunum. Nýlegar kannanir sýna að milli 75-97% fólks á Norðulöndum þekkja Svaninn og að meðaltali 74% segist bera mikið traust til merkisins.








