Sameignin okkar
Allt verður miklu betra ef við göngum betur um stóru sameignina okkar þarna úti, segir Ellen R. Kristjánsdóttir, tónlistarmaður.
Græn bílalán Ergo
Brynjólfur Snorrason, ráðgjafi hjá Ergo leiðir okkur í allan sannleik um græn bílalán Ergo, bæði til nýrra og eldri bíla.
Ergo, sem er fjármögnunardeild Íslandsbanka, er stolt að hafa verið fyrst til að kynna græn bílalán á íslenskum markaði. Grænu bílalánin hafa hlotið frábærar viðtökur og margir nýtt sér þau.
Vottunarkerfin eru vinnutæki Eldingar
Elding Hvalaskoðun Reykjavík sérhæfir sig í afþreyingu á sjó. Eva María Þórarinsdóttir Lange, markaðsstjóri, segir okkur frá umhverfismarkmiðum Eldingar.
Actavis er grænjaxl
Sem dæmi um markmiðasetningu og góðan árangur í umhverfismálum hjá Actavis, þá er sorp sem fellur til
við reksturinn endurunnið eða endurnýtt. Á árinu 2006 fóru einungis 26% sorps í endurvinnslu eða endurnýtingu, í lok ársins 2010 var hlutfallið komið í 85% og er enn að aukast.
Endurvinnsla og skógar í Sesseljuhúsi
Í Sesseljuhúsi stendur nú yfir sýningin Endurvinnsla og skógar.
Íbúar Sólheima söfnuðu öllum umbúðum sem til féllu á heimili þeirra í eina viku og var útbúið svokallað skógarherbergi úr ruslinu. Þetta var meðal annars gert til að vekja íbúa til umhugsunar um allt ruslið sem til fellur og hvernig hægt sé að takmarka það, einnig að sýna fram á að rusl getur líka verið auðlind.
Náttúran er grænjaxl
Náttúran.is er upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt. Náttúran.is er grænjaxl og vinnur með Grænum apríl að því að vekja athygli á grænum og umhverfisvænum vörum, þjónustu og þekkingu í mánuðinum.
Seeds er grænjaxl
SEEDS eru íslensk frjáls félagasamtök sem taka á móti erlendum sjálfboðaliðum til þess að sinna umhverfis- og menningarmálum í samstarfi við sveitarfélög, samtök og einstaklinga. Seeds er grænjaxl og tekur virkan þátt í Grænum apríl.
IKEA er grænjaxl
IKEA á Íslandi er Grænjaxl. Við viljum taka þátt í að búa til heim þar sem við hugsum betur um umhverfið, auðlindirnar og hvert annað. Við vitum að stundum erum við hluti af vandamálinu. Þess vegna leggjum við hart að okkur til að verða hluti af lausninni.
Auður Capital er grænjaxl
Auður Capital er grænjaxl og hefur markað sér umhverfisstefnu. Í aprílmánuði munu starfsmenn Auðar nýta tímann til hins ítrasta til að festa stefnuna enn betur í sessi.
Salka er grænjaxl
Bókaútgáfan Salka var stofnuð vorið 2000 og frá upphafi hefur grænn lífsstíll og umhyggja fyrir umhverfinu skipað ríkan sess í markmiðum fyrirtækisins. Salka er því sannur grænjaxl og styður átaksverkefnið Grænan apríl af heilum hug.
Samtök lífrænna neytenda stofnuð
Troðfullt var út úr dyrum á stofnfundi Samtaka lífrænna neytenda í Norræna húsinu í gærkvöldi. Undirbúningur að stofnun samtakanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði.








