Keyra á frönskum
Simmi og Jói eru stoltir yfir þeim árangri, sem Hamborgarafabrikkan hefur nú þegar náð í umhverfismálum, m.a. með flokkun á lífrænum úrgangi. Þeir ætla að halda ótrauðir áfram og komast í fremstu röð fyrirtækja hvað varðar umhverifsstefnu og framkvæmd hennar.
Vistvæn íbúð í IKEA
IKEA hefur í tilefni af Grænum apríl innréttað sérstaklega einstaklingsíbúð með vistvænum lausnum á einum stað og ábendingum um umhverfisvænni hversdag.
Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel
Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar fjölskylduvænt.
Fjórðungur starfsmanna hjólar
Starfsmenn Mennta- og menningarmálaráðuneytisins eru duglegir við að nota reiðhjól til að komast til vinnu sinnar og nokkrir þeirra hjóla allan ársins hring, hvernig sem viðrar.
Samgöngusamningur er allra hagur
Við höfum sniðið umhverfið okkar að einkabílnum. Það kostar samfélagið að halda slíku úti, til dæmis með uppsetningu bílastæða.
Grand Hótel Reykjavík svansvottað
Stærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand Hótel Reykjavík, hlaut í dag vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins samkvæmt viðmiðunarreglum fyrir hótel. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna.
Við þekkjum nærumhverfið
Hjá Ferðaþjónustu bænda höfum við fylgt umhverfisstefnu í mörg ár. Sagan og menningin eru gullmolar. Við höfum áhrif á umhverfið og þurfum að draga úr umhverfisáhrifum, flokka, kaupa umhverfisvæn efni og vörur. Draga fram það góða og fallega í umhverfinu okkar. Okkar félagar gera það.
Kópavogsbær er grænjaxl
Kópavogsbær er Grænjaxl. Kópavogsbær hefur unnið ötullega að umhverfismálum undanfarna áratugi en sést það einkum á fallegum opnum svæðum og frágangi og umhverfi íbúðarsvæða. Síðustu misseri hefur verið unnið að því að gera metnaðarfulla stefnu varðandi ýmsa þætti í umhverfismálum með það í forgrunni að bæta lífsgæði íbúa og vernda náttúru- og menningarminjar.
Umhverfisstefna leikskóla
Leikskólinn í Stykkishólmi hefur í skólastefnu sinni áætlun sem miðar að því að auka menntun og þekkingu og efla virðingu fyrir náttúru og umhverfi lands og hafs.
Grænir pistlar Hosilo um fatnað, skart og tísku
Hosiló er verslun sem selur notaðan fatnað og aðra aukahluti og býður það í eðli sínu upp á tækifæri til að leita sjálfbærri leiða í verslun og þjónustu. Umhverfisstefna er þó ekki leið sem tekur enda heldur endalaus vegur nýrra leiða og markmiða sem stefnir að grænni og hagkvæmari rekstri.
Auður Capital er grænjaxl
Auður Capital er grænjaxl og hefur markað sér umhverfisstefnu. Í aprílmánuði munu starfsmenn Auðar nýta tímann til hins ítrasta til að festa stefnuna enn betur í sessi.
Reykjavíkurborg er grænjaxl
Reykjavíkurborg er grænjaxl og fjölmargar aðgerðir og viðburðir eru á prjónunum, sem kynntir verða í apríl, þar sem græni kosturinn er valinn í starfi borgarinnar.
Umhverfisráðuneytið er grænjaxl
Við vitum ekki hvort Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra á eftir að hlaupa Grænan apríl í ár, en eitt er víst að hún mun ganga á grænum dregli og klippa á grænan borða á einhverjum skemmtilegum stað til að láta okkur öll vita af því að nú sé átakið formlega hafið. Meira um það síðar. Umhverfisráðuneytið er grænjaxl og tekur heilshugar þátt í Grænum apríl.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið er grænjaxl
Menna- og menningarmálaráðuneytið er grænjaxl og styður við bakið á Grænum apríl, meðal annars með kynningu á ýmsum verkefnum, sem eru á döfinni og tengjast skóla og fræðslustarfi.








