Hvað verður um ruslið okkar?
SORPA hefur séð um ruslið okkar í meira en tvo áratugi. Markmiðið er að auka endurvinnslu og endurnotkun. Endurvinnslustöðvarnar taka við úrgangi, þar sem hægt er að flokka í allt að 25 flokka og skila inn flöskum og dósum og fá pening fyrir. En það eru ekki bara skilagjöld til einstaklinga sem eru fjármunir þegar ruslið okkar er annars vegar.
Flokkun er ekki flókin
Flokkun vefst fyrir sumum, en Hrund Ólöf Andradóttir, dósent í umhverfisverkfræði við Verkfræði og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands útskýrir á einfaldan hátt hvernig flokkun á úrgangi fer fram á sviðinu
Jón Gnarr – Okkur má ekki vera sama!
Reykjavík, sem borg hefur möguleika, sem aðrar borgir hafa ekki séns í, við höfum möguleika á að geta orðið, ef við tækjum höndum saman, hreinasta og grænasta borg í heimi.
SORPA sorterar
Markmið SORPU snýst um aukna endurvinnslu og endurnotkun. Frá fyrsta starfsdegi breytt Efnamóttakan miklu í rétta átt og bæði Metan og Góði hirðirinn hafa gengið glimrandi vel. Góði hirðirinn er rekinn í samvinnu við líknarfélögin og er óhætt að segja að Góði hirðirinn hafi leyst þörf, sem var fyrir hendi – að koma góðum hlutum áfram til nýrra eiganda. Góði hirðirinn var nýverið tilnefndur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.
Kaffitár er grænjaxl
Fyrstu og einu veitinga/kaffihús landsins sem eru með Svansvottun eru 8 kaffihús Kaffitárs. Þau ásamt eldhúsi Kaffitárs fengu vottun 2010. Kaffitár er grænjaxl og vekur athygli þína á Grænum apríl. Kaffitár hefur um árabil flokkað allt rusl og úrgang en með Svansvottuninni var gengið enn lengra. Allt lífrænt efni úr eldhúsi Kaffitárs og kaffihúsum t.d. allur kaffikorgur fer í moltugerð.
Vissir þú að…
Það er skemmtileg dægrastytting að rýna í tölfræði, sem tengist lífsháttum okkar og umhverfi. Hér eru nokkrar blákaldar staðreyndir.








