Einn svartur ruslapoki

Ruslið í Reykjavík

Grænn apríl skorar á alla Reykvíkinga að fara út með einn svartan ruslapoka og fylla hann af drasli og rusli, em er að finna í næsta nágrenni. Fyllum pokann og tökum til í borginni okkar.

Skógar- og fjölskylduganga Skógræktarfélags Kópavogs

kopav.skograekt

Skógræktarfélag Kópavogs stendur fyrir skógar- og fjölskyldugöngu fimmtudaginn 28. apríl, í samvinnu við umhverfissvið Kópavogsbæjar. Gangan er í tilefni af Grænum apríl, Degi umhverfisins þann 25. apríl og að Sameinuðu þjóðirnar hafa tileiknað skógum heimsins árið 2011.

Íbúafundur vegna umhverfisvottunar

stykkisholmur-hofn

Miðvikudaginn 27. apríl kl. 20. verður efnt til íbúafundar í Stykkishólmi um umhverfisvottun EarthCheck, sem Stykkishólmsbær hefur hlotð í samstarfi við hin sveitarfélögin á Snæfellsnesi.

Viltu prófa metanbíl?

metanbill.is

Þann 14. apríl er opið hús í Vélamiðstöðinni – metanbill.is – frá klukkan 16-18 í tilefni af Grænum apríl.
Vélamiðstöðin er til húsa í Gufunesi 112, Reykjavík.

Skógarleiðangur í Laugardal

Grasagarðurinn í Laugadal, Reykjavík

Hvar finnum við tré? Hvað heyrist í þeim? Hvernig lykt er af þeim? Hvers vegna stækka þau? Hvað verða þau eiginlega gömul? Í könnunarleiðangri um garðinn munu börn og kennarar finna svör við þessum spurningum og fjölmörgum fleiri. Skógarleiðangrar eru farnir í Laugardal dagana 4.-8. apríl kl. 9.15-11.15 


Íslenska Gámafélagið er grænjaxl

Íslenska Gámafélagið lógó

Íslenska Gámafélagið er Grænjaxl og stuðningsaðili framtaksins Grænn apríl.