Sjálfbærari byggingar

Fimm arkitektastofur í Reykjavík sameinuðust fyrir nokkrum árum um vinnu að rannsóknarverkefni sem þau kalla Betri borgarbragur (bbb.is). Verkefnið verður unnið á þremur árum og hlaut Öndvegisstyrk frá Tækniþróunarsjóði (RANNÍS) í fyrsta sinn sumarið 2009. Að verkefninu standa 5 arkitektastofur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Háskóli Íslands. Arkitektastofurnar eru Arkitektúra, ASK arkitektar, Gláma Kím arkitektar, Hús og skipulag, Kanon arkitektar og Teiknistofan Tröð.

Farfuglaheimilið í Laugardal opnar Grænt hringborð

Græna Hringborð Farfugla í Laugardal

Upplýsingarveita um græna kosti í ferðamennsku opnaði í dag á Farfuglaheimilinu í
Laugardal. Að Græna hringborðinu standa Farfuglaheimilið í samstarfi við verkefnið
Lifandi vegvísa á Höfuðborgarstofu, en þar geta ferðamenn og heimafólk fengið
upplýsingar um græna vöru og þjónustu alla daga í sumar.

Hjólað í vinnuna, skráning

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Átakið Hjólað í vinnuna stendur í ár frá 4. til 24 maí. Skráning hefst 18. apríl og um að gera að drífa í skráningunni, sem allra fyrst.

Kjaran er grænjaxl

Kjaran.is

Kjaran gólfbúnaður er grænjaxl og tekur þátt í grænum apríl. Kjaran sérhæfir sig í innflutningi og sölu á vistvænum gólfefnum frá Forbo. Forbo hefur framleitt náttúruleg línoleumgólfefni í meira en hundrað ár.