Grand Hótel Reykjavík er Svansvottað hótel

Grand Hótel Reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins og hlaut á dögunum umhverfismerki Svansins.
Á Grand Hóteli Reykjavík er lögð áhersla á persónulega og vinalega þjónustu og hótelið er afar fjölskylduvænt.

GRÆNIR HÆLAR í samvinnu við EarthCheck

Guðrún G. Bergmann, Grænir hælar

Stutt er síðan GRÆNIR HÆLAR tóku að sér að vera umboðsaðilar EarthCheck á Íslandi, en eigandi fyrirtækisins Guðrún Bergmann hefur þó verið tengd þessu umhverfisvottunarmerki allt frá árinu 1999, meðan það enn hét Green Globe.

Hótel Hellnar, platinum

Hótel Hellnar gekk til liðs við umhverfisvottunarsamtökin Green Globe árið 2000 og hlaut vottun frá þeim árið 2002, en nafni Green Globe var fyrir nokkru breytt í EarthCheck. Hótelið er tekið úr árlega og við úttekt á árinu 2012 er gert ráð fyrir að það hljóti Platinum vottun frá EarthCheck, fyrst allra hótela í Evrópu, en það hljóta þau fyrirtæki sem hafa verið vottuð í 10 ár.

Farfuglaheimilin í Reykjavík hljóta Kuðunginn

farfuglar-kudungur

Umhverfisviðurkenning Umhverfisráðuneytisins, Kuðungurinn, var veitt í 16. sinn í dag og kom að þessu sinni í hlut Farfuglaheimilanna í Reykjavík fyrir framlag sitt til umhverfismála á síðastliðnu ári. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, afhenti verðlaunin við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag og sagði Farfuglaheimilin í Reykjavík vel að verðlaununum komin.

Vottun tryggir gæði

Sturlaugur Þór Halldórsson

Sturlaugur Þór Halldórsson er sölu og markaðsstjóri hjá Bros. Bros er ISO vottað fyrirtæki samkvæmt staðli 9001 og í því verkefni felst að öll verkefni eru unnin samkvæmt ákveðnum verkferlum. Um það bil 30 íslensk fyrirtæki eru nú vottuð samkvæmt ISO 9001.

Maður og náttúra eru eitt!

Grundarfjarðarbær

“Verkefnið okkar er að vera áfram frumkvöðull í umhverfismálum. Við erum að nýta náttúruna, en á meðvitaðan hátt. Maður og náttúra eru eitt!” Þetta segir forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði, Sigurborg Kr. Hannesdóttir.

EarthCheck og umhverfisstarf í Grundarfirði

Grundarfjarðarbær

Grundarfjarðarbær er þátttakandi í verkefninu Grænn apríl og er hreinræktaður grænjaxl, vegna þess að hvert einasta skref í átt að betri umgengni um umhverfið skiptir máli. Það er á ábyrgð okkar allra að gera það sem í okkar valdi stendur. Því við höfum aðeins eina jörð og hana höfum við að láni frá afkomendum okkar.

Dokkan morgunfundur um vottunarferli N1

dokkan.is

Dokkan bíður öllu fag- og áhugafólki um gæðastjórnun og umhverfismál á glæsilegan morgunfund i tilefni þess að N1 fær vottun samkvæmt ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðli. Þjónustustöð og verkstæði N1 við Bíldshöfða 2, er fyrsta fjölorkustöðin á Íslandi sem fær staðfestingu á vottun samkvæmt 14001 umhverfisstjórnunarstaðlinum.

Snæfellsbær er grænjaxl

snb.is

Snæfellsbær er á utanverðu Snæfellsnesi.  Snæfellsbær er hluti af fyrsta vottaða sveitarfélagi í Evrópu og er sannkallaður grænjaxl.

Bros er grænjaxl

Bros er grænjaxl

Bros er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og merkingum á fatnaði og auglýsingavöru. Bros er Grænjaxl og er með vottað, ISO 9001 gæðakerfi.

Samtök lífrænna neytenda stofnuð

Stofnfundur Samtaka Lífrænna Neytenda. Ljósmyndari: Ari Hultquist

Troðfullt var út úr dyrum á stofnfundi Samtaka lífrænna neytenda í Norræna húsinu í gærkvöldi. Undirbúningur að stofnun samtakanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði.